Hvað varð um herramennskuna?

Herramennska eða eins og við segjum á góðri íslensku “sjentilmennska” er gamalt orð yfir karlmenn sem kunna að koma vel fyrir og koma vel fram við konur.

 

Áður fyrr var það heiður fyrir karlmanninn að fá að dekra við konuna sína, ekki endilega með peningum eða gjöfum, heldur með því að láta henni líða eins og hún væri eina konan í heiminum.

 

Og eflaust hafa margir séð þennan eiginleika hjá eldra fólki í fjölskyldunni. Í dag veit ég ekki alveg hversu stór hluti karlmanna kann þetta, en þeir eru samt nokkrir.

 

Það að koma vel fram við konuna sína getur t.d. verið að láta hana finna það að þú hafir verið að hugsa til hennar yfir daginn með því að senda eitt sætt sms eða einfaldlega hringja í hana og segja eitthvað fallegt við hana, eða það að reyna að komast fyrr heim úr vinnunni einn föstudaginn, láta renna í heitt bað og vera búinn að elda eitthvað gott þegar hún kemur heim úr vinnu eða skóla.

 

Þetta er ekki svo flókið, eða í rauninni er þetta einfaldlega það sem þarf til þess að halda sambandinu lifandi, að gera eitthvað fyrir hvort annað, og það þarf ekki að kosta mikla peninga.

 

Ég er ekki að segja það að karlmaðurinn eigi alfarið að sjá um rómantíkina í sambandinu, ég er einfaldlega að koma því á framfæri að konur vilja láta koma fram við sig eins og prinsessur og ef okkur líður þannig er alveg bókað að karlmaðurinn fær það tvöfalt til baka, eða í mjög mörgum tilfellum.

 

Sjálf hef ég lent í nokkrum vandræðalegum atvikum þar sem karlmaðurinn hefur ekki alveg verið að standa sig í stykkinu.

 

Sem dæmi þurfti ég að standa frammi fyrir því að þurfa að borga helminginn af pizzu á móti ákveðnum aðila, sem átti að heita deitið mitt/kærasti, þegar mjög stór vinahópur minn var með okkur.

 

Þegar afgreiðslukonan spyr: „Saman eða í sitthvoru lagi??“. Þá svarar hinn sanni herramaður, SAMAN ... en ekki, já hún borgar sinn helming!

 

GUÐ MINN GÓÐUR, sé eftir því að hafa ekki beðið vin minn sem stóð fyrir aftan mig um að borga fyrir mig.

 

Ekki misskilja mig, ég er ekki að fara fram á það að karlmaðurinn borgi allt, en þetta er bara spurning um rétt móment til þess að sýna það að þú sért  herramaður og gera þig kannski aðeins meira spennandi fyrir vikið.

 

Einnig er eitt atriði sem ég vil koma á framfæri.

 

Þegar konan þín er veik, er á versta tíma mánaðarins, hormónasveiflurnar eru óbærilegar eða þegar hún er gjörsamlega óþolandi leiðinleg í skapinu, reyndu þá bara að taka utanum hana og sýna henni að hún skiptir þig máli. 

 

Það er miklu skárri lausn í staðinn fyrir það að henda þér á djammið með strákunum og segja að hún sé óþolandi.

 

Við erum allar viðkvæmar og leitumst eftir karlmanni til þess að passa okkur og vera til staðar þegar við þurfum hann. Já, við erum frekjur, allar, og viljum finna það að við séum ómissandi.

 

En auðvitað eru til yndislegir herramenn inn á milli, og ég hef alveg kynnst þeim nokkrum. Sumir eru einfaldlega of góðir og kunna að koma fullkomlega rétt fram við konur.

 

Karlmenn verða samt sem áður að passa sig á því að ofnota ekki herramennskuna þannig að konan upplifi það kæfandi. Einfaldlega að koma henni á óvart, það kunnum við allar að meta.

 

Stelpur verða líka að kunna að meta það þegar kærastinn sýnir henni þessa hlið á sér þar sem að þetta er mjög góður kostur. Hvaða kona vill ekki eiga mann sem sýnir henni að hann hann sé kletturinn hennar og styðji hana í einu og öllu? Allavegana ég og margar sem ég þekki.

 

Ég get lofað þeim karlmönnum sem reyna þetta, þ.e.a.s, að vera herramenn, eiga eftir að slá í gegn hjá tengdó, hvaða faðir sem er passar uppá dóttur sína eins og slípaðan demant, ekkert fær að rispa hann, hvað þá einhver stráklingur sem kann ekki að meta demantinn ... hahhaha. Vonandi er ég ekki búin að hræða karlmenn frá mér, en þetta er bara það sem ég hef upplifað.

 

Eitt er víst, að herramennska heillar konur og gefur karlmönnum auka sjarma sem hefur þau áhrif á okkur að það þarf að skúra gólfið á eftir okkur. Hvaða karlmaður sem er getur orðið meira spennandi ef hann hefur herramannseðlið í sér og mæli ég með því að allir karlmenn reyni sitt besta, þ.e.a.s ef þeir hafa áhuga á konum.

 

A gentleman is simply a patient wolf

Ritstjórn
20.1.2012

Ert þú nokkuð svona á svellinu?

Getur hjálpað að vera með fjóra fætur.

Ritstjórn
20.1.2012

Það er EINHVER að fylgjast með þér! - Mynd

Þú sérð samt líklega ekki strax.

Ritstjórn
20.1.2012

Mögulega eitt flottasta markið í íshokkí!

Verður varla meira töff!

Ritstjórn
20.1.2012

Mikill snjór á þakinu? - EKKI gera þetta!

Þetta kemur í hausinn á mönnum.

Ritstjórn
20.1.2012

Það vantar eitt veigamikið atriði inn á þessa mynd! Tekurðu eftir því?

Tók mig smá tíma að velta þessu fyrir mér!

Ritstjórn
20.1.2012

Allir stilltu sér venjulega upp fyrir mynd - nema tveir ...

Hvaða tveir eru það?

Ritstjórn
20.1.2012

Á milli þessarra manna er ást! - Mynd

Eða eitthvað sem gæti verið notað til skapa slíkt.

Ritstjórn
19.1.2012

Ef að þessi kona lyftir meira en þú ... - Mynd

Þá er komin ágætis hvatning til að kíkja í ræktina ...

Ritstjórn
19.1.2012

Barn í sambandið breytir svefnstellingunum fyrir parið! - Mynd

Þau eru lítil - en taka STÓRT pláss.

 

Á alla kanta.

Ritstjórn
19.1.2012

Myndirðu taka þessa upp í bílinn?

Færi kannski alveg eftir hver ætti bilaða bílinn?

Keyrir á Disil CMS frá Atómstöðinni